Gone Fishing ehf

Um okkur

Gone Fishing ehf
kt. 630210-0970
vsk. 104092
gonefishing@gonefishing.is
895 0568 enska

Velkomin í Gone Fishing vefverslun.

Hugmyndin að vefversluninni hefur verið að gerjast í nokkuð langan tíma. Ástæðan var takmarkað úrval af vörum til sjóveiði. Upphaflega var meiningin að vera eingöngu í sjóveiði (strönd og bát), þar sem maðurinn minn hefur stundað þá veiði í fjölda ára. En svo vatt þetta auðvitað upp á sig og við viljum reyna að bjóða sitt lítið að hverju á hagstæðu verði. Okkar sérgrein er sjóveiði og getum við veitt góðar upplýsingar um það sem viðkemur henni. Við erum einnig með góðar vörur fyrir silung og lax og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 

Opnunartími: Það sem er svo frábært við vefverslun er að hún er opin allan sólarhringinn. Við getum afhent vöru utan venjulegs vinnutíma og gerum okkar besta ef einhvern vantar reddingu. Það er jú oft þannig að við komumst að því að okkur vantar eitthvað eftir lokun venjulegra verslana og erum á leið út úr bænum. Þá er bara að kanna hvort Gone Fishing getur hjálpað. 

Hvernig versla ég: Til að versla í vefversluninni þarf að skrá sig inn og er best að skrá hjá sér aðgangsorð til seinni tíma nota. Ef lykilorð gleymist er hægt að fá það sent í tölvupóst.

Afhending vöru: Alltaf verður haft samráð við kaupanda um afhendingu vöru, það þarf ekki endilega að sækja til okkar, við getum afhent vöru á höfuðborgarsvæðinu í flestum tilvikum og svo er einfaldara að hafa samráð um sendingarmáta því oft hefur fólk aðgang að ódýrari flutningi og er alveg sjálfsagt að reyna að koma til móts við ykkur með slíkt. Til að ákveða varðandi flutning er best að senda okkur tölvupóst á gudrunkben@gmail.com þú getur sent okkur fyrirspurnir á þetta netfang ef þú hefur einhverjar spurningar og við munum reyna að svara þér eftir bestu getu.

Við leggjum áherslu á að veita góða þjónustu. Við lofum þó ekki að svarað verði í síma eftir klukkan 22.00 :) (s: 895 0568 enska)

 

 

Vörukarfa
0 vörur

Samtals: 0 ISK